Birth Your Way eftir Sheila Kitzinger
Indisleg bók sem hver verðandi móðir ætti að lesa sér til undirbúnings fyrir fæðinguna.
Ég las þessa bók þegar ég hafði ákveðið að eiga mitt annað barn heima og eftir lesturinn varð ég ennþá sannfærðari að ég væri að gera rétt.
Þessi bók er ekki eingöngu ætluð þeim sem stefna að heimafæðingu heldur er hún hvatning til þess að hafa skoðun á öllu því sem við kemur fæðingunni og hjálpar mannig við að taka meðvitaða ákvörðun um fæðinguna.
Bókin svaraði mörgum spurning sem upp komu við skipulagningu heimafæðingarinnar og hjálpaði mér einnig þegar kom að því að hitta mína heimafæðingarljósmóður og vita um hvað ég ætti að spyrja hana.
Til baka í Fæðing
Til baka í Bækur