Brjóstagjöf

Hér á landi finnst flest öllum sjálfsagt mál að nýfætt barn fái brjóst og stöndum við ágætlega að vígi hvað það varðar, þannig fá meirihluti barna á Íslandi brjóstamjólk fyrstu vikur ævinnar.
Kostirnir eru ótvíræðir fyrir barnið en ávinningurinn fyrir móðurina er einnig mikill.
Alþjóðaheilbrigðisstofnun (WHO) mælir með að brjóstagjöf sé eina fæðan til 6 mánaða og síðan með annarri fæðu til tveggja ára eða lengur. Stofnunin mælir líka með því að börn komist á brjóst helst innan klukkustundar eftir fæðinguna. WHO hefur gefið út vaxtarkúrfu sérstaklega fyrir brjóstabörn, en þessi kúrfa var unnin eftir margra ára rannsókn sem var gerð í öllum heimsálfum. 10 staðreyndir um brjóstagjöf.
Góð grein um brjóstagjöf eftir eins árs birtist í blaðinu Mothering 2007.
En brjóstagjöfin er ekki alltaf dans á rósum og geta mörg vandamál komið upp, en þá verður að takast á við þau og finna lausnir. Hvert er hægt að leita þegar vandamál koma upp? Gott er að undirbúa sig fyrir brjóstagjöfina á meðgöngunni og lesa sig til um brjóstagjöf áður en barnið kemur. Það eru því miður ekki margar bækur til á íslensku en ein slík er þó væntanleg.
Brjóstagjafamyndbönd gæti verið gagnlegt að skoða til undirbunings brjóstagjöf.
Bækur:
- Mothering Yor Nursing Toddler, eftir Norma Jane Bumgarner
- The Ultimate Breastfeeding Book of Answers, eftir Jack Md Newman og Teresa Pitman
- The Womanly Art of Breastfeeding, La Leche League International
