Náttúruleg

Náttúrulegar mæður og börn

Brjóstagjafavikan 2009

Alþjóðlega brjóstagjafavikan er nú haldin hátíðleg á Íslandi í annað sinn dagana 21.-27. september 2009.

Ísland er þar með í hópi yfir 120 ríkja sem halda alþjóðlegu brjóstagjafavikuna hátíðlega. Heimssamtök um brjóstagjöf (World Alliance for Breastfeeding Action – WABA) settu alþjóðlegu brjóstagjafavikuna á fót fyrir 18 árum og í hvert sinn sem brjóstagjafavikan er haldin, er fjallað um brjóstagjöf út frá ákveðnu þema. Þemað í ár er brjóstagjöf fyrstu vikuna.

Tilgangur alþjóðlegu brjóstagjafavikunnar er að auka þekkingu á brjóstagjöf, vernda hana og styðja.

Í ár er boðið upp á glæsilega dagskrá:

Mánudagurinn 21. september
Setning vikunnar og ljósmyndataka í framhaldi

Þriðjudagurinn 22. september
Fundur brjóstagjafasamtakanna

Miðvikudagurinn 23. september
Nærvera og snerting sameingar brjóstagjöf og barnaburð

Föstudagurinn 25.september
Fjöldagjöf kl.15:00

Laugardagurinn 26.september
Málþing í Mími, Skeifunni 8 kl.11:00

Sunnudagurinn 27.september
Kaffisamsæti kl.14:00-15:00

Allar nánari upplýsingar um vikuna og viðburði hennar má finna á www.brjostagjafavika.org





Gleðilega brjóstagjafaviku :)