Náttúruleg

Náttúrulegar mæður og börn

Hvert er hægt að leita þegar vandamál koma upp?

Íslendingar eiga marga brjóstagjafaráðgjafa miðað við önnur lönd þ.e.a.s. konur sem hafa tekið svokallað brjóstagjafaráðgjafapróf og til þeirra er hægt að leita þegar vandamál koma upp. Á LSH starfa ráðgjafar sem allar konur geta leitað til óháð fæðingarstað, einnig eru ráðgjafar starfandi á mörgum heilsugæslustöðvum.

Brjóstagjafafundir í anda La Leche League eru haldnir einu sinni í viku og hægt er að koma þangað hvort sem einhver vandamál eru til staðar eða ekki. Þetta eru skemmtilegir og gefandi óformlegir fundir þar sem allir eru velkomnir. Svona stuðningshópar eru þekktir um allan heim, en stuðningur er eitt af því mikilvægasta í farsælli brjóstagjöf og hvet ég því mæður til þess að mæta.

Hérna eru nokkrar erlendar vefsíður sem tengjast brjóstagjöf.

Til baka í Brjóstagjöf