Fæðing
Flestar fæðingar á Íslandi eiga sér stað á sjúkrahúsum en það eru alltaf fleiri og fleiri konur sem kjósa náttúrulegri leið og líta ekki á fæðingu sem sjúkdóm heldur náttúrulegt ferli fyrir barn að koma í heiminn. Heimafæðingar hafa aukist til muna á síðustu árum og einnig vatnsfæðingar.
Líkami konunnar er gerður fyrir náttúrulega fæðingu án lyfja og læknisaðstoðar. Kona sem fær að treysta eigin líkama og gera það sem hún er fær um, tekst á við hríðirnar og fæðinguna og þá er niðurstaðan dásamleg, náttúruleg fæðing.
Til eru margar náttúrulegar leiðir til að takast á við hríðirnar. Nálastungur, vatn, nudd, yoga, tónlist, íhugun, hreyfing og fleira.
Á Giving Birth Naturally er hægt að sjá mörg falleg myndbönd af fæðingum. Sjúkrahúsfæðingar, heimafæðingar og vatnsfæðingar.
Hver á að vera viðstaddur, er annað sem þarf að ákveða. Oftast eru það ljósmóðir og verðandi faðir sem eru viðstödd en einnig gæti konan viljað hafa hjá sér einhvern annan, kannski mömmu sína, bestu vinkonu eða jafnvel eldri börn.

Einnig er í boði að nýta sér þjónustu frá Doulu.
