Doula
Doula er kona sem hjálpar annari konu í fæðingu. Orðið er upphaflega grískt og þýðir þjónn eða þræll konu.
Doula aðstoðar verðandi móður fyrir, í og eftir fæðingu og styður hana andlega sem og líkamlega. Doula er í fæðingunni á forsendum fæðandi móður og getur verið talsmaður hennar. Aðstoð doulu er aldrei læknisfræðileg og kemur aldrei í stað ljósmóður eða læknis þegar það á við.
Fæðingar-doula
Á meðgöngunni hittir konan douluna nokkrum sinnum og ferð yfir sínar óskir varðandi fæðinguna. Doula getur ráðlagt konunni með ýmislegt varðandi undirbúning t.d. námskeið, fæðingarstellingar og slökun í fæðingu. Doula getur bent á hvar megi nálgast upplýsingar um hvað er í boði er tengist fæðingu, t.d. fæðingarstaði, verkjameðferðir og hvaða réttindi konan hefur á meðgöngu og eftir fæðingu barnsins.
Kostir þess að hafa doulu (á ensku)
Til baka í Fæðing