Náttúruleg

Náttúrulegar mæður og börn

KoppaSamskipti

Elimination Communication eða EC eins og við köllum þetta oftast

EC snýst um samskipti milli foreldra og barns þegar barnið þarf að pissa/kúka, þannig að barnið “lætur vita” þegar því er “mál”. Þegar börn fæðast þá hafa þau ákveðna stjórn á þeim vöðvum sem stjórna því að pissa/kúka (hver hefur ekki lent í því að barnið pissar um leið og bleian er tekin af) en með því að nota bleiu þá læra þau að pissa í bleiuna og missa þannig niður þessa stjórn en þurfa svo að læra aftur á þessa vöðva um tveggja ára þegar venjuleg koppaþjálfun byrjar.

Hvenær er best að byrja:
Það er lang best að byrja fyrir 4 mánaða eða helst fyrir 6 mánaða. Það er reyndar vel hægt að byrja seinna en þá þarf að gera hlutina aðeins öðruvísi því börn eru þá farin að hreyfa sig meira. Mér skilst að það sé alveg hægt að byrja þótt barnið sé að verða tveggja ára.

Hvernig er best að byrja:
Ég tel að best sé að byrja á því að fylgjast með barninu mjög náið þ.e.a.s. taka einn dag (þarf ekki að vera heill dagur, kannski bara smá stund) í að finna út hvenær það pissar/kúkar og jafnvel skrá það hjá sér. Fylgjast svo með því hvort barnið gefi frá sér einhver merki þegar eða rétt áður en það pissar/kúkar. Flest börn eru mjög vanaföst í þessu, t.d. pissa strax og þau vakna, fljótlega eftir að þau drekka og oft mjög ört á morgnanna.
Segja svo ákveðið orð/hljóð þegar það pissar (t.d. pisspiss eða ssss hljóð) og þannig lærir barnið að tengja þetta orð/hljóð við það að pissa.
Svo er að bjóða barninu stað til að pissa, það getur verið klósettið, koppur, skál, vaskur eða hvað sem manni dettur í hug. Til að byrja með notaði ég bara taubleiu sem ég lagði á gólfið fyrir framan mig og strákurinn minn pissaði á hana, en núna notum við mest klósettið en einnig koppinn. Það er alveg eðlilegt að börn fatti þetta ekki alveg fyrst og þá þarf bara þolinmæði.

Það er vel hægt að gera þetta “part time” þannig að barnið missi ekki alveg niður tilfinninguna við að pissa þótt notaðar séu bleiur með.
Það er einfaldara að nota taubleiur en einnota vegna þess að það getur reynst erfitt að finna hvort einnota bleian sé blaut eða ekki. Börn finna einnig meira fyrir því að vera búin að pissa í taubleiur en bréfbleiur.

EC myndband

Frekari upplýsingar

Heimasíður:
- Born Potty Trained
- DiaperFreeBaby
- Diaper Free
- Free To EC
- Pottywhisperer

Bækur:
- Diaper Free: The Gentle Wisdom of Natural Infant Hygiene, eftir Ingrid Bauer
- Infant Potty Training, eftir Laurie Boucke
- The Diaper Free Baby, eftir Christine Gross-Loh