Náttúruleg

Náttúrulegar mæður og börn

Taubleiur

Taubleiur eru sífellt að verða vinsælli. Í dag fást taubleiur sem eru bæði einfaldar og þægilegar í notkun. Mikil breyting frá því í gamla daga þegar notaðar voru gasbleiur og plast bundið utan yfir.

Hversvegna taubleiur?
Helstu kostirnir við að nota taubleiur eru að þær eru náttúruvænni, ódýrari og minni líkur á bleiuútbrotum hjá barninu en ef notaðar eru einnota bleiur.

Hvað er hvað?

  • All-in-one - AIO (allt-í-einni) bleia er einfaldasta gerðin af taubleium og einna líkust bréfbleium. Mjúkt efni næst húðinni, fast innlegg þar fyrir innan og ysta lagið er vatnshelt. Ekki er þörf á neinum aukahlutum en í sumar gerðir er hægt að setja auka innlegg. Fest með riflási eða smellum. Helstu kostir: Allt í einni bleiu, einföld, fljótleg og þægileg (einstaklega pabba og leikskóla væn). Helsti ókostur: Getur verið lengi að þorna.
  • Pocket (vasableia) er bleia í tveimur hlutum. Bleian sjálf er úr mjúku efni næst húðinni og vatnsheldu efni yst, á milli myndast vasi þar sem innlegg er sett í. Með sumum tegundum fylgir innlegg með bleiunni en öðrum þarf að kaupa þau sér. Fest með riflási eða smellum. Helstu kostir: Fljót að þorna, einföld og þægileg í notkun, hægt að auka rakadrægnina með mismunandi innleggjum og/eða fjölda innlegggja. Helsti ókostur: Það þarf að setja innlegg innan í bleiuna.
  • One-size bleia er bleia þar sem hægt er að stilla stærðina svo hún passi frá fæðingu þar til bleiutímabilinu líkur. Til eru AIO bleiur, vasableiur, fitted bleiur og cover sem eru one-size. Helsti kostur: Ódýrari til lengri tíma litið en bleiur í stærðum (ein bleia á móti small, medium og large). Helstu ókostir: Gæti verið heldur stór og fyrirferðarmikil á minnstu börnin fyrstu dagana og/eða vikurnar, einnig gæti hún orðið of lítil í lok bleiutímabilinu (ef barn er mjög stórt). Hver one-size bleia en venjulega dýrari en bleia í stærðum.
  • Fitted (sniðin) bleia er úr mjúku rakadrægu efni sem er sniðin að barninu, jafnvel með teygjum um lærin og í mittið. Sumar sniðnar bleiur eru með vasa fyrir auka innlegg til þess að auka rakadrægnina, en aðrar eru með föstu innleggi eða engu innleggi. Fest með riflási, smellum eða án festinga (þá er t.d. hægt að nota NappiNippas bleiufestingu). Helstu kostir: Venjulega ódýrari en AIO og vasableiur, mjúkt efni sem tekur við miklu. Helstu ókostir: Þarf cover yfir, ef ekki er riflás né smellur á bleiunni þá gæti verið þörf á annarskonar festingu.
  • Prefolds er forbrotin bleia þar sem búið er að sauma saman nokkur lög af efni í ferhyrning til þess að gera hana rakadræga. Oft er henni skipt í þrjá hluta þar sem miðjan er þykkari en hliðarnar og eru merktar t.d. 3-6-3 eða 4-8-4 sem gefur til kynna fjölda efnislaga í hliðum og miðju. Nokkrar aðferðir eru notaðar við ásetningu og eru oftast leiðbeiningar á pakkningunni. Helstu kostir: Ódýr, einfaldari en gasbleia, nýtist sem innlegg þegar bleian sjálf er orðin of lítil. Helstu ókostir: Þarf að setja cover yfir, er án festinga en hægt að nota t.d. NappiNippas bleiufestingu (þó ekki nauðsynlegt, í sumum tilfellum er nóg að láta cover halda bleiunni).
  • Gasbleia er ferhyrnt bómullarefni sem þarf að brjóta á ákveðin hátt til að passi á barnið. Helstu kostir: Ódýr, fljót að þorna, getur nýst allt bleiutímabilið, notast svo áfram eftir að hún hefur þjónað bleiuhlutverkinu (t.d. í tuskur). Helstu ókostir: Þarf að brjóta á ákveðinn hátt, þarf cover yfir, er án festinga en hægt að nota t.d. NappiNippas bleiufestingu (þó ekki nauðsynlegt, í sumum tilfellum er nóg að láta cover halda bleiunni).
  • Innlegg er sá hluti bleiunnar sem tekur við vætunni og heldur henni í sér. Innlegg eru úr mismunandi efnum: Microfiber, hamp, bambus, bómull, ull og silki.
  • Doubler er þunnt viðbótar innlegg sem notað er þegar þörf er á auka rakadrægni.
  • Cover (bleiubuxur) eru notaðar yfir bleiur sem eru ekki með vatnsheldu ysta lagi, svo sem fitted, prefolds og gasbleiur. Úr vatnsheldu efni sem andar, PUL, ull sem hefur fengið ullarmeðferð eða flís. Oft getur cover einnig haldið bleiu sem ekki er með bleiufestingum.
  • Hríspappír er þunnur pappír sem hægt er að setja innan í bleiu til að “grípa” hægðirnar og einfalda þannig kúkableiurnar. Hríspappírnum er svo hent beint í klósettið (nema ef um gamlar eða lélegar lagnir er að ræða). Ef aðeins hefur verið pissað í hríspappírinn er hægt að setja hann í þvottavélina með bleinum og nýta 3-5 sinnum.
  • Riflás. Helstu kostir þess að hafa riflás sem festingu: Fljótlegt að setja bleiuna á, sérstaklega þægilegt þegar börn vilja ekki liggja kyrr, mittismálið er mun stillanlegra en þegar um smellur er að ræða. Helstu ókostir: Slitnar meira en smellurnar og er viðkvæmari. Ef bleian passar ekki vel á barnið og riflásinn ekki staðsettur á góðum stað þá getur hann sært húð barnsins við læri og/eða maga (þó mismunandi eftir tegundum).
  • Smellur. Helsti kostur: Endast nánast endalaust (sum fyrirtæki ábyrgjast jafnvel smellurnar í nokkur ár). Helstu ókostir: Ekki eins mikill stillanleiki eins og með riflásinn. Það er lengur verið að setja bleiuna á en þegar um riflás er að ræða. Passa þarf að smella ekki í húð barnsins.
  • NappiNpippas er bleiufesting sem kemur í staðin fyrir næluna sem notuð var í gamla daga. Er notuð til að festa fitted bleiur sem eru ekki með festingar, prefolds og gasbleiur. Einfalt í notkun en passa þarf að bleian sé ekki of þunn þar sem festingin kemur svo hún fari ekki í gegnum bleiuna og í húð barnsins.

Hvað þarf margar bleiur?
Fyrir nýbura er gott að miða við u.þ.b. 10-12 bleiur fyrir hvern sólarhring.
Smátt og smátt fækkar þeim niður í u.þ.b. 5-8 bleiur.
Magnið fer í raun eftir því hversu oft áætlað er að þvo bleiurnar.

Hvernig geymi ég bleiurnar á milli þvotta?
Það er best fyrir PUL-efnið (vatnshelda efnið í AIO og vasableium) að geyma bleiurnar á þurrum stað (ekki í bleyti). Ef þær fá að þorna sjálfar á milli þvotta þá eru minni líkur á lykt. T.d. er hægt að leggja þær fyrst með blautu hliðina upp á bala-brún áður en þær fara ofan í balann sem þær eru geymdar í þar til þær fara í þvott. Fitted bleiur, prefolds og gasbleiur er hægt að geyma eins eða í bleyti.

Hvernig þvæ ég bleiurnar?
Flestar bleiur má þvo á 60°C og ágætt er að þvo bleiurnar á frekar löngu þvottakerfi, jafnvel með forþvotti. Hægðir er hægt að skola úr fyrir þvott ef ekki hefur verið notaðu hríspappír. Það er þó ekki nauðsynlegt þegar um mjólkurhægðir er að ræða.
Notið aðeins milt þvottaefni sem er í duftformi og inniheldur engar olíur. Lítið magn í einu.
Ekki nota mýkingar- eða bleikiefni.

Hversu oft þvæ ég?
Á hverjum degi, annan hvern dag eða jafnvel þriðja hvern dag (ekki er mælt með því að þvo sjaldnar en það).
Þetta er spurning um hvað hentar hverjum og einum og hversu margar bleiur eru til á heimilinu.

Þarf ég að þvo bleiurnar fyrir notkun?
Já, allar bleiur og innlegg þarf að þvo fyrir fyrstu notkun.
Bleiur og innlegg úr náttúrulegum efnum þarf jafnvel að for-þvo nokkrum sinnum og þurrka á milli, fyrir notkun, til að ná upp rakadrægni. Betra er að for-þvo náttúruleg efni sér eða með t.d. handklæðum (ekki með bleium sem eru með einhvers konar flísefni).
Aðrar bleiur og innlegg er nóg að þvo og þurrka einu sinni fyrir fyrstu notkun.

Hvar fást taubleiur?

Listi yfir taubleiuframleiðendur

Íslenskur taubleiumarkaður

Nýtt taubleiuspjall - endilega takið þátt

Diaper Pin - Ýmsar upplýsingar um taubleiur, ráð, yfirlit og fleira

Myndbönd

Notar þú taubleiur?

View Results

Loading ... Loading ...