Ullarkúr fyrir bleiubuxur
Það er nauðsynlegt að lanolinsera ullarbleyjubuxur að minnsta kosti 2x fyrir fyrstu notkun til að gera þær vatnsheldar, sumir segja 3x en maður verður bara að meta það sjálfur.
Þú þarft ekki að þvo buxurnar eftir hverja notkun því ullin, með lanolíninu, er sjálfhreinsandi.
Gott er þó að þvo þær á 2-8 vikna fresti og það þarf að lanolinsera þær einu sinni eftir hvern þvott.
Buxurnar má bara þvo í höndunum eða á 30°c ullarprógrammi með ullarsápu.
Þetta þarft þú að hafa til taks;
-Lansinoh brjóstakremið
-Ullarsápu eða barnasjampó
-1,5 dl sjóðandi heit vatn til að leysa kremið upp i.
-Þvottabala með volgu vatni sem nær upp fyrir buxurnar, nema þú viljir nota vaskinn þá læturu renna i hann.
-2 Stór handklæði.
Svona gerir þú;
-þú kreistir ca. 2-5cm (fer eftir stærð á flíkinni og hversu mikið vatn þú notar með) ræmu af lansinoh brjóstakreminu út í ca 1,5dl af sjóðandi heitu vatni og setur smá skvettu(ca 2 msk) af ullarsápu eða barnasjampói útí og hrærir vel saman.
-Blandan á að vera örlítið ljósari en undanrenna á litinn.
-Það er mjög mikilvægt að nota sápuna með því annars getur lanolinið hlaupi í kekki.
-Síðan læturu renna volgt vatn í bala (mér finnst best að nota bala en sumir gera þetta í vaskinum) en ekki hafa of mikið, bara þannig að það nái upp fyrir buxurnar þegar þær fara ofan i.
-Svo hellirðu heitu blöndunni útí og hrærir vel og svo máttu leggja buxurnar útí og láta bíða í 15 mínútur.
-Það er gott að þrýsta þeim vel niður í vatnið til að þær blotni örugglega í gegn. -Þegar þú tekur buxurnar uppúr eftir 15 mínútur þá máttu ekki vinda þær heldur bara kreista vatnið úr þeim.
-leggur þær síðan á tvöfallt handklæði, brýtur handklæðið saman yfir buxurnar og rúllar svo upp og svo er mjög gott að standa ofan á handklæðinu svo það kreistist sem mest vatn úr buxunum.
-Tekur svo buxurnar úr og leggur á þurrt handklæði og lætur þorna.
-Það er aldrei ráðlagt að setja ullarbuxur beint á ofninn því þá þæfast þær.
Endurtakið svo eftir þörf en buxurnar þurfa alltaf að fara þurrar í ullarkúrinn.
Athugið samt að það er hægt að lanolinsera of mikið, þá verða buxurnar fitugar og leiðinlegar en það jafnar sig þó með notkun, passið þá bara næst að nota minna magn af lanolini.
Hér er allt sem þú þarft að vita um ull-> http://www.diaperpin.com/clothdiapers/howto_woolcare_kiwipie.asp
Fengið af Hnoðrar.com
Til baka í Taubleiur