Taubleiuspjall
09 September 2010, 09:30:00 *
Welcome, Guest. Please login or register.

Login with username, password and session length
News: SMF - Just Installed!
 
   Home   Help Search Login Register  
Pages: [1] 2 3 ... 10
 1 
 on: 08 September 2010, 23:49:56 
Started by mjása - Last post by Nikkan
Ég hef snúist í marga hringi með þennan pappír og hef loksins komist upp á lagið með að nota hann. Mér fannst þetta meira vesen en hitt þegar ég fékk bara eina kúkableiu á dag að vera að föndra þennan pappír í hverja bleiu. Núna er ég farin að setja þetta í allar bleiur og svo í klósettið ef kemur kúkur annars bara í þvott og í þurrkarann. Popli pappírinn þolir alveg þurrkara en Imse pappírin síður. Popli minnkar reyndar aðeins en að mínu mati passar hann bara betur í bleiuna eftir þurrkarann og ég þarf síður að brjóta inn á hann áður en hann fer í bleiuna. Svo er líka spurning um hvernig hægðir barnið er með. Ef þetta losnar vel af bleiunni þá þarf varla að nota pappír en ef maður er með svona klessuhægðir þá er frábært að vera með pappír.

 2 
 on: 08 September 2010, 13:39:10 
Started by Nikkan - Last post by Nyckelpiga
Ég er með vasableiur með riflás fyrir leikskólann og nota hríspappír inn í hverja bleiu sem fer þangað. Er svo með einn PUL poka sem við förum með á morgnana og tökum heim þegar við sækjum. Fyllum á bleiuhólfið á morgnana eftir þörfum og eftir því hversu mikið af hreinum bleium við eigum heima. Reyni yfirleitt að hafa minnst 4 bleiur í hólfinu en hún notar sjaldnast fleiri en tvær yfir daginn, einstaka sinnum þrjár.

Þegar ég kynnti þetta fyrir starfsfólkinu fyrst mætti ég bara með eina bleiu og sýndi þeim í stað þess að minnast á taubleiur án útskýringar (þá hugsa svo margir bara um gasbleiur og gamaldags bleiuplast). Allt starfsfólkið var mjög jákvætt eftir að hafa séð bleiurnar og áttað sig á að þetta væri ekkert meiri vinna fyrir það og þetta hefur gengið rosalega vel (rúmlega árs reynsla komin á þetta).

 3 
 on: 08 September 2010, 13:32:31 
Started by mjása - Last post by Nyckelpiga
Ég hef aðallega notað hríspappírinn á leikskólanum en minna heima. Ég hef keypt Popli pappírinn sem fæst hjá Kindaknús.

Ef það er bara piss í bleiunni fer pappírinn ásamt bleiunni í þvottastampinn og svo í þvottavélina, þurrka hann svo á snúru (nota sjaldnast þurrkara fyrir taubleiurnar). Annars fer pappír og kúkur í klósettið.

Nota pappírinn í allar bleiur á leikskólanum, daman kúkar ekki eftir klukkunni Wink

 4 
 on: 08 September 2010, 10:49:28 
Started by mjása - Last post by mjása
sælar fróðu konur, nú er stúlkan mín farin að borða aðeins af mat og hægðirnar eru því aðeins að harðna, þá koma nokkrar spurningar tengdar þessu,:


eruð þið að nota hrsípappír og hvaða tegund mælið þið með? (hvar fæst hann?)
setjið þið hægðirnar og pappírinn í klósettið ?
setjið þið pappírinn sem fór bara piss á í vélina með bleyjunum og svo í þurrkarann?
notið þið alltaf pappírinn eða bara þegar þið eigið vona á nr 2

 takk fyrir svörin:)

 

 5 
 on: 07 September 2010, 23:16:59 
Started by Nikkan - Last post by hugrun
ég var með minn á leikskóla frá kl 8-14 og reiknaði með ca 3 bleium á dag (átti haug af bleium) og fór með á mánudögum. tékkaði svo lagerinn um miðja viku en þurfti sjaldnast að fylla á, oftast fékk ég 2 bleiur á dag heim og það voru alltaf nokkrar í hólfinu í lok vikunnar.
ég var bara með tvo PUL poka í gangi, einn  sem ég skildi eftir í fatahenginu hans og tók hann með heim á daginn og mætti með hann eða hinn  á morgnana. bara eftir því hvort þeir voru hreinir eða ekki. Langoftast notaði ég þann sama þar sem að þær hentu alltaf kúknum úr bleiunum.

ég fór með þær bleiur sem ég ætlaði að nota og sýndi starfsfólkinu, var mestmegnis með bleiur með frönskum rennilás til að hafa allt sem einfaldast Wink

 6 
 on: 07 September 2010, 21:48:40 
Started by Nikkan - Last post by Nikkan
Takk fyrir svarið:) Varstu með marga PUL-poka í gangi eða dugði þér að nota 1-2? Fylltir þú fyrir alla vikuna á mánudögum eða þurftir þú að koma með eitthvað í miðri viku líka? Ég er að byrja með minn á leikskóla og er að spá í þetta allt saman:)

 7 
 on: 07 September 2010, 20:31:24 
Started by Nikkan - Last post by hugrun
Ég hafði þetta eins einfalt og ég gat þar sem þeim fannst þetta ekkert rosalega heillandi hugmynd í fyrstu, fannst það svo bráðsniðugt seinna.
Var með vasableiur og AIO og pappír í þeim til að taka við kúknum. Þær hentu því nú oftast úr fyrir mig.
Var með góðan taubleiupoka úr pulefni sem þær settu óhreinar í og ég tók með mér á hverjum degi heim en á mánudögum fyllti ég bleiuhólfið hans alltaf.
Þetta gekk mjög vel hjá okkur.

 8 
 on: 07 September 2010, 19:41:37 
Started by Nikkan - Last post by Nikkan
Hvaða taubleiur hafa virkað best á leikskólanum og hvernig er fyrirkomulagið hjá ykkur varðandi það að koma með og taka heim? Er einhver sem hefur verið með fitted á leikskólanum og hvernig er það að ganga að nota svona "marga hluti" - eruð þið t.d. með mörg aukacover á leikskólanum?

 9 
 on: 07 September 2010, 00:39:30 
Started by Babybaun - Last post by Babybaun
Vorum að fá nýjar AIO One Size bleiur frá GroVia, hrikalega girnilegar og nettar bleiur. Frekari upplýsingar hér http://snilldarborn.com/is/products/info/id/727

Með kveðju,
www.snilldarborn.com

 10 
 on: 06 September 2010, 22:16:35 
Started by mjása - Last post by mjása
takk fyrir þetta, finnst sniðugt að hengja pullið öðru hvoru þegar maður hefur tíma en annars er svo þægilegt að skella þessu bara öllu í hann en ég vil auðvitað að bleyjurnar endist sem lengst Wink

Pages: [1] 2 3 ... 10
Powered by MySQL Powered by PHP Powered by SMF 1.1.7 | SMF © 2006-2008, Simple Machines LLC Valid XHTML 1.0! Valid CSS!