Ég keypti eina Snatableiu og var að vona að hún myndi reynast vel þar sem pabbinn var hrifinn af þeim og þær á góðu verði. Hún lak hins vegar alltaf og í gegn um PULið. Ég fékk að skipta henni (sem btw mér finnst frábær þjónusta hjá Barnavörum) og fékk nýja en sú hefur næstum undantekningarlaust lekið líka þannig að ég gafst upp og nota hana bara í algerri neyð og bara þegar við erum heima. Ég skil reyndar ekki hvers vegna hún lekur alltaf hjá mér, eina bleian sem lekur alltaf og ég er búin að strípa hana en það hefur ekkert að segja, hún lekur samt. Kannski kann ég bara ekkert að nota hana. Eitt skipti endaði með því að við þurftum báðar að skipta um föt og nærföt þar sem stelpan sat í fanginu á mér og það liðu 10 mínútur frá því bleian fór á.
Snata bleina mín lak líka alltaf fyrst en málið var hjá mér að ég var með hana of stórt stillta þannig að það lak meðfram henni einhvern vegin. Hélt að hann væri kominn í stærstu stillinguna, en það hentaði betur að hafa hana í miðju stillingunni og þá lak hún aldrei.
En ef að hún er ennþá að leka myndi ég hafa samband við Barnavörur aftur, veit að það er vesen en samt, borgar sig að eiga góða bleiu í stað þess að hafa hana algjöra aukableiu