ormur
Newbie

Posts: 9
|
 |
« on: 03 March 2010, 13:09:15 » |
|
Ég veit að þessi spurning hefur komið áður en mig langaði að forvitnast hvernig bleiu þið notið á nóttunni. Við höfum notað bréfbleiur á nóttunni með nokkrum undantekningum en á daginn notum við aðallega vasableiur. Finnst samt eitthvað óþægilegt við að nota þær á nóttunni er betra kannski að nota fitted? Hvernig cover notið þið með þeim? Ég á eina kissaluvs fitted, er ekki alveg nógu ánægð með hana, finnst hún eitthvað svo lítil og stelpan bara 6 mánaða. Hvernig eru IV bleiurnar sem næturbleiur? Er betra að nota ullar cover? Ég tími varla að kaupa svoleiðis og kann ekki að prjóna sjálf - hins vegar hef ég saumað flís cover sem eru bara fín (nota það yfir heimasaumaða bleiu úr bómullarbolum, mjög hentug varaskeifa ;-)).
Þegar þið notið ullar cover eruð þið þá með barnið í náttfötum utan yfir? Stelpan mín er mjög heitfeng þannig að ég hef spáð í hvort henni yrði og heitt í ullinni.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
rosebud
|
 |
« Reply #1 on: 03 March 2010, 13:58:20 » |
|
Ég á eina IV AIO sem ég nota á nóttunni, og með henni nota ég fitted bambus eða hamp með ullarcoveri. Ég á bæði Disana ullarcover og svo svona cover sem er eins og buxur, ég nota það mest. http://snilldarborn.com/is/products/search/gid/72Með vasableiurnar að þá geturðu auðvitað sett eins mikið af auka innleggjum og þú þarft fyrir nóttina.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
Evita
|
 |
« Reply #2 on: 03 March 2010, 17:55:50 » |
|
Ég nota MT AIO OS bleyju og ég set hampinnlegg undir innleggin. Þessi blanda hefur ekki lekið síðan í haust. Þá hef ég sennilega ekki smellt bleyjunni nógu passlega eða eitthvað og barnið svaf mikið á maganum og það kom stundum piss upp fyrir. En lekinn er alveg úr sögunni núna.
Varðandi fitted bleyju þá á ég nú bara þrjár og hef aldrei notað þær yfir nótt.
Ég man að babybaun hefur talað um að hún noti stundum kiwi pie bleyju á nóttunni og thirsties cover með. Ég vona að ég sé að fara með rétt mál, ég man bara eftir þessu af því að mig langar svo í kiwi pie bleyju og veit ekki af hverju í ósköpunum ég er ekki búin að kaupa mér eina!
Gangi þér vel.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
sigrun
|
 |
« Reply #3 on: 03 March 2010, 18:21:07 » |
|
Það er skothelt hjá okkur að nota hamp/bambusbleiu og ullarcover. Við erum t.d. mjög ángæð með Sugar Peas og Hemp Hour með ullarbuxunum frá Babyidea.
Einnig hefur BerryPlush með hampinnlegginu sem fylgir reynst mjög mörgum vel bæði á nóttunni sem og á daginn, og einnig hafa Imse Vimse AIO bleiurnar verið vinsælar nætur/daglúrableiur. Svo eitthvað sé nefnt.
En þetta er í rauninni frekar einfalt - Aðalatriðið er að hafa nægilega rakadrægni. Þar sem hampur og bambus eru rakadræg efni eru fitted bleiur úr þessum efnum vinsælar næturbleiur. Ullin andar vel ásamt því að draga í sig raka og er þar af leiðandi góð á nóttunni.
Ef vasableia eða AIO bleia er notuð er einmitt gott að setja aukainnlegg til þess að fá aukna rakadrægni.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
Babybaun
|
 |
« Reply #4 on: 03 March 2010, 20:23:58 » |
|
Ég nota MT AIO OS bleyju og ég set hampinnlegg undir innleggin. Þessi blanda hefur ekki lekið síðan í haust. Þá hef ég sennilega ekki smellt bleyjunni nógu passlega eða eitthvað og barnið svaf mikið á maganum og það kom stundum piss upp fyrir. En lekinn er alveg úr sögunni núna.
Varðandi fitted bleyju þá á ég nú bara þrjár og hef aldrei notað þær yfir nótt.
Ég man að babybaun hefur talað um að hún noti stundum kiwi pie bleyju á nóttunni og thirsties cover með. Ég vona að ég sé að fara með rétt mál, ég man bara eftir þessu af því að mig langar svo í kiwi pie bleyju og veit ekki af hverju í ósköpunum ég er ekki búin að kaupa mér eina!
Gangi þér vel.
Það er rétt, ég hef verið að nota Kiwi Pie og Thirsties cover yfir. Kiwi Pie er æðisleg bleia að mínu mati, rosalega mjúk og teygjanleg og mjög rakadræg en á sama tíma frekar nett.
|
|
|
|
|
Logged
|
Með kveðju, Babybaun
|
|
|
Sigrún M
Newbie

Posts: 21
|
 |
« Reply #5 on: 03 March 2010, 22:10:27 » |
|
Sammála babybaun með Kiwi Pie, finnst þær bestar af mínum fitted bleium. Nota bambus, hamp eða bómullar fitted bleiur með ullar coveri yfir. Nota Engel ullarbuxur eða IV ullarcover og það virkar vel. Set reyndar alltaf auka bambusdoubler með öllum fitted bleiunum og þær duga vel í 11-12 tíma.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
njala
|
 |
« Reply #6 on: 05 March 2010, 02:48:49 » |
|
Ég hef verið að nota Berryplush snap in hampinnlegg m/minkee og sett svo snata bleiu utan um og hef þá ekkert í vasanum á henni, nota hana því í raun eins og bleiubuxur bara en vil ekki nota venjulegar bleiubuxur því þá er svo mikið plast sem liggur uppvið húðina á hliðunum en með þessu er það suede.....berryplush bleiubuxurnar sem eiga að notast með innlegginu eru ennþá aðeins of stórar á gæjan minn enda bara 5 vikna.....en þetta hefur reynst okkur ótrúlega vel, aldrei lekið og alltaf nánast þurr á morgnanna en ég skipti ekki á honum á næturnar þannig þetta er alveg á honum í 10 tíma ca. Hef svo líka notað bumgenius aio organic bleiuna en finnst bómulinn vera svo blaut og köld eitthvað þegar ég tek þetta af honum eftir svona langan tíma.
Um að gera að prófa....það verður þá bara pissublautt meðan þú ert að finna réttu næturbleiuna...ég notaði alltaf bréf fyrstu 2 vikurnar á næturnar og ákvað svo að prófa tauið þá líka því ég var farin að fá samviskubit yfir þessarri einu bréfbleiu sem við notuðum á sólarhring!!
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
aslaugb
Newbie

Posts: 24
|
 |
« Reply #7 on: 05 March 2010, 19:41:54 » |
|
ég hef verið að nota montrassa vasableyju með 2 microfiber innleggjum. Virkar mjög vel á mína 2 ára
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
Nikkan
|
 |
« Reply #8 on: 06 March 2010, 22:17:54 » |
|
Ég er bara með fitted bleiur og ullarbuxur (1 Ruskovilla og 2 Disana) og fyrir nóttina er ég farin að setja bara auka innlegg í þær bleiur sem ég er að nota á daginn. Nota s.s. sömu bleiur á næturnar og daginn nema með aukainnleggi. Strákurinn minn er í síðermasamfellu og náttgalla fyrir utan bleiu og ullarbuxur og það hefur virkað vel - hef reyndar litla reynslu af öðru. Ég myndi persónulega halda að það væri heitara að vera með PUL-cover heldur en ull vegna þess að ullin heldur ekki hitanum inni og temprar betur. Það þarf ekkert að vera dýrt að kaupa ullarbuxur. Ódýrustu sem ég veit um eru Engel hjá Litlu kistunni sem eru á 1.700. Þær eru væntanlega pínu stórar (86/92) en það er örugglega allt í lagi þar sem þetta verða næturbuxur og endast þá bara lengur frameftir aldri. Ég keypti bæði 74/80 og 86/92 af Dísana buxum (eru svipaðar og Engel) á sínum tíma og hann er svona að komast í þá stærð núna (grannur 16 mán) en þær hafa alveg virkað - ná bara lengra upp á maga og niður á læri og gera bossann stærri. Þú kemst alveg upp með að eiga einar en þarft hugsanlega að nota eitthvað annað í þau örfáu skipti sem þarf að þvo þær og lanolísera.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
dundala
Newbie

Posts: 18
|
 |
« Reply #9 on: 19 March 2010, 13:59:42 » |
|
Ég nota bambus fittedbleiu frá BG og ullarbuxur yfir. Alveg skothelt. Dugir í 12 tíma.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
sun82
|
 |
« Reply #10 on: 19 March 2010, 21:18:41 » |
|
Ég nota alltaf AIO bamboo baby bleyju á nóttunni(sama bleyja og ég nota með BG á daginn), útaf bambusnum þá er þetta geðveikt rakadrægt og lekur ekki þó ég skipti ekki í um 11-12 tíma! ER hrifnari af bambus næst húðinni en bómul í svona langan tíma. Ef ég er ekki með hreina bamboo baby þá nota ég bambus fitted bleyju og ruskovilla eða disana buxur yfir.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
Ransom
|
 |
« Reply #11 on: 20 March 2010, 14:50:37 » |
|
Ég nota fitted bleiur á næturnar. Á bæði Totsbots og Motherease. Totsbots dugar alveg eins og sér en ég set alltaf auka hampinnlegg með Motherease. Yfir nota ég svo ullarbuxur, á bæði Disana og Ruskovilla. Finnst Disana ekki dýrar, eitthvað um 3000 kall og alveg hægt að kaupa þær stórar þannig að þær dugi lengur. Höfum örsjaldan lent í lekum, þá er kannski bleian eitthvað skökk á honum eða eitthvað þannig en annars er þetta skothelt. Hann er tveggja ára. Svo hef ég líka notað eldgamla Pocket change vasableiu á næturnar, með báðum innleggjunum sem fylgja með (mikrofiber og hampur). Hún er líka alveg skotheld. Minn strákur er alltaf í náttfötum utan yfir ullina en hann sefur aldrei með sæng og er frekar kulvís. Ullin andar og þau eiga ekki að svitna í henni.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|
Aðalheiður
|
 |
« Reply #12 on: 05 April 2010, 18:23:46 » |
|
Mér finnst Grobaby best á nóttinni því hún er sú eina sem hefur aldrei lekið. Ég nota hana með einum booster og innleggin eru alveg á floti en samt lekur hún ekki. Ég er með eina 7 mánaða sem er enn að drekka 3-5 sinnum á nóttu.
|
|
|
|
|
Logged
|
|
|
|
|