Náttúruleg

Náttúrulegar mæður og börn

Um mig

Ég er tveggja barna móðir og er heimavinnandi. Dóttir mín sem er fædd 2005 kom í heiminn á fæðingardeildinni á LSH og gekk fæðingin sjálf mjög vel, en ég var mjög hrædd og ósátt við margt eftir á. Sonurinn fæddist svo hérna heima 2007, það var vatnsfæðing og allt önnur lífsreynsla. Hér var allt svo rólegt og yfirvegað og engin hræðsla í gangi. Dóttir mín var viðstödd fæðingu bróður síns og finnst mér það ótrúlega magnað. Eiginmaður minn var að sjálfsögðu viðstaddur báðar fæðingarnar.
Ég frétti af EC þegar sonurinn var þriggja mánaða og byrjaði þá strax, en ég notast líka við taubleiur.
Burðarpokar hafa algjörlega bjargað lífi mínu, ég nota þá á hverjum degi fyrir soninn og svo stöku sinnum fyrir dótturina þegar hún biður um að fá að fara í burðarpoka.
Brjóstagjöf er mér hjartansmál, að mínu mati er brjóstagjöf ein mikilvægasta gjöfin sem ég gef börnunum mínum.

Með þessari heimasíðu vil ég miðla upplýsingum til mæðra og verðandi mæðra sem kjósa náttúrulegar leiðir fyrir sig og börnin sín. Vonandi hjálpar hún einhverjum.

Dagný Ósk Ásgeirsdóttir